Ritstjórnarhópurinn les hverja sögu með athygli og með þá vitund að þú treystir okkur fyrir einhverju sem skiptir máli. Við lagfærum texta ef þörf krefur, en aldrei innihald, rödd eða tón sögunnar sjálfrar. Það er þín saga, sögð á þínum forsendum.
Auðkenni fólks, stofnana og staða fjarlægjum við úr birtum sögum, nema ef sagan snýst beinlínis um almenna umfjöllun um þekkta þjónustu, en þá göngu við úr skugga um að engar persónugreinanlegar upplýsingar birtist. Þetta á jafnt við þau sem þú vísar til í sögunni og þig sjálfa.
Sumar sögur birtum við ekki. Það á við þegar saga nefnir tilteknar persónur með nafni á neikvæðan hátt án sönnunargagna, innheldur hatursorðræðu, eða er auðsjáanlega ekki send í góðri trú. Sögur sem birtast ekki af slíkum ástæðum eru ekki nýttar annars staðar heldur.
Sögurnar eru aldrei seldar, þeim deilt með þriðja aðila í markaðstilgangi, eða notaðar til að þjálfa gervigreind. Þær eru aðeins nýttar samkvæmt því samþykki sem þú veittir við innsendingu.
Kvenheilsudagurinn er vettvangur fyrir reynslu, ekki læknisráðgjöf. Sögurnar sem hér birtast eru persónuleg reynsla og hver reynsla er einstök. Það sem reyndist vel fyrir eina konu er ekki endilega rétt fyrir aðra. Ef þú stendur frammi fyrir heilsufarsspurningu, leitaðu til fagfólks í heilbrigðiskerfinu.
Ritstjóri vefsins er Helga Björnsdóttir, yfirlögfræðingur Ósa.
Ef þú hefur spurningar um ritstjórnarstefnuna eða athugasemdir við eitthvað sem birtist á vefnum, getur þú haft samband í gegnum netfangið ritstjorn@kvenheilsudagurinn.is.