Alþjóðlegi kvenheilsudagurinn

28. maí

Alþjóðlegi kvenheilsudagurinn hefur verið haldinn 28. maí ár hvert frá árinu 1987. Hann á sér rætur í alþjóðlegri kvenheilbrigðisráðstefnu sem haldin var í Costa Rica það ár. Þar komu saman konur úr ólíkum áttum til að beina sjónum að því sem hefur fengið of lítið rými í heilbrigðisumræðu heimsins, heilsu kvenna sjálfra.

Á þeim tæplega fjörutíu árum sem liðin eru hefur dagurinn breiðst út víða um heim. Hann er nýttur af alþjóðlegum stofnunum, opinberum heilbrigðisaðilum og fagaðilum víða í Evrópu. Innan Evrópusambandsins er dagurinn árlega tileinkaður umfjöllun um þau verkefni sem snúa að bættri kvenheilsu í álfunni.

Á Íslandi hefur dagurinn fram til þessa farið að mestu hljóðlega fram. Því viljum við breyta.

Ósar hafa ákveðið að nýta 28. maí á hverju ári til að beina sjónum að heilsu kvenna á Íslandi, að því sem hefur áunnist og að því sem á eftir að gera. 2026 er fyrsta árið. Næstu ár ætlum við að byggja á því sem konur leggja til, og festa Kvenheilsudaginn í sessi sem fastan hluta af íslenskri heilbrigðisumræðu.

Kvenheilsudagurinn