Hér finnur þú svör við algengum spurningum um Kvenheilsudaginn og vefinn sjálfan. Ef þú finnur ekki það sem þú leitar að, ekki hika við að hafa samband.
Hver er tilgangurinn?
Tilgangur vefsins er að safna saman reynslu og þekkingu sem konur búa yfir um heilsu sína og íslenska heilbrigðiskerfið. Þessi reynsla er dýrmæt, og við viljum tryggja að hún komist í farveg þar sem hún getur orðið grunnur að opnara samtali og betri þjónustu fyrir konur.
Hver eru markmiðin með vefnum?
Á þessu fyrsta ári er markmiðið einfalt. Að skapa vettvang þar sem konur geta deilt sögum sínum nafnlaust, og byggja þannig upp safn og innsýn í reynsluheim kvenna sem getur smátt og smátt orðið hluti af opnara samtali um heilsu kvenna á Íslandi.
Til lengri tíma viljum við að kvenheilsudagurinn 28. maí festist í sessi sem árlegur viðburður og árvekniátak. Að sögurnar sem hér safnast verði nýttar af þeim sem hafa þekkingu og getu til að bæta þjónustu við konur, hvort sem er innan Ósa, í heilbrigðiskerfinu eða annars staðar.
Hvernig virkar vefurinn?
Þú deilir sögu þinni í gegnum innsendingarformið. Þar gefur þú upp aldursbil, velur efni og skrifar söguna eins og þú vilt segja hana. Þú gefur ekki upp nafn eða nokkur auðkenni. Þú ákveður sjálf hvort sagan birtist á vefnum eða nýtist eingöngu sem hluti af samansafnaðri greiningu.
Þegar sagan berst okkur fer hún til ritstjórnarhóps innan Ósa, ritstýrt af Helgu Björnsdóttur, yfirlögfræðingi Ósa. Hópurinn, sem skipaður er heilbrigðismenntuðum konum í leiðtogahlutverkum innan Ósa-samstæðunnar, fer yfir hverja sögu, fjarlægir öll auðkennandi smáatriði og lagfærir málfar ef þörf krefur. Sögur birtast aðeins eftir samþykkta yfirferð og samkvæmt þeim reglum sem þú getur lesið á síðunni Ritstjórnarstefna.
Hver stendur að vefnum?
Ósar standa að Kvenheilsudeginum og reka vefinn. Ósar eru móðurfélag fyrirtækja sem öll sérhæfa sig í heilsu og heilbrigði með einhverjum hætti. Sjá nánar á vef Ósa.
Innan samstæðunnar starfar stór hópur af reynslumiklu fagfólki, sem mörg hafa komið að bættri kvenheilsu frá ýmsum hliðum. Það eru fulltrúar þessa fagfólks sem myndar þann ritstjórnarhóp sem fer yfir innsendingar og tryggir að farið sé með sögurnar af virðingu.
Hvert berast sögurnar?
Þær birtast á vefnum sjálfum (ef þú gefur samþykki fyrir því), þar sem aðrar konur geta lesið þær og fundið samhljóm við eigin reynslu. Þær verða hluti af samansafnaðri greiningu sem ritstjórn vinnur úr safninu með reglulegu millibili. Þá greiningu nýtum við til að byggja upp betri þekkingu á því hvar þjónustan getur orðið betri, og að lokum verður greiningunni komið í farveg til frekari framfara á heilbrigðisþjónustu fyrir konur.
Engin saga er nýtt umfram það sem þú hefur samþykkt.
Er þetta öruggt?
Vefurinn er hýstur í Microsoft Azure í Evrópu og fer eftir öllum kröfum persónuverndarlaga. Engin netföng eða persónugreinanlegar upplýsingar eru vistaðar.
Er þetta læknisráðgjöf?
Nei. Kvenheilsudagurinn.is er vettvangur fyrir reynslusögur, ekki læknisráðgjöf. Sögurnar sem hér birtast eru persónuleg reynsla og hver reynsla er einstök. Ef þú stendur sjálf frammi fyrir heilsufarsspurningu, leitaðu til heilsugæslu eða annarra sérfræðinga. Á heilsuvera.is er einnig hægt að senda inn fyrirspurnir til fagfólks.
Hvert get ég snúið mér ef ég hef spurningar?
Sendu okkur póst á ritstjorn@kvenheilsudagurinn.is og við svörum innan tveggja virkra daga.